Á námskeiðinu
verða ýmis grunnatriði við
tölvuvinnslu kynnt. Helstu stærðir
og jaðartæki tölvunnar verða
útskýrð og tekin dæmi
um hvað skiptir máli við kaup
á tölvu. Þá verður
Windows viðmótið kynnt og þátttakendur
útbúa notendaaðgang og setja
upp eigið viðmót. Skipulagning
tölvunnar verður útskýrð
með áherslu á möppukerfið
og sérsniðnar möppur í
Windows. Tekin æfing í Internetinu
- upplýsingaleit, innkaup og fleira.
Excel I
Staðir: Neskaupstaður
– Verkmenntaskóli
Seyðisfjörður - Seyðisfjarðarskóli
Leiðbeinanandi: NN
Verð: auglýst síðar.
Lengd námskeiðs.:12 kennslustundir
– 3 skipti
Tími: Neskaupstaður apríl
2006
Seyðisfjörður apríl 2006
Skoðuð verða grunnatriði,
formúlur og gagnasöfn töflureiknis.
Nemendur læra að útbúa
formúlur og nota tímasetningar
í útreikningi. Kennd verður
uppsetning, leit og niðurröðun
gagnasafna og fjölnota skjala og hvernig
nýta má gagnasöfn til afstemmingar
á bankareikningum og til útsendingar
á bréfum og prentun límmiða.
Fjallað er almennt um stafrænar
myndavélar, mismunandi gerðir, stillingar
og almennar forstillingar sem henta við
mismunandi aðstæður. Markmiðið
að nemendur kynnist stafrænu myndavélinni
sinni betur.
Fjallar er um hagnýt atriði ljósmyndunar,
s.s. mismunandi veðurskilyrði og aðstæður,
sjónarhorn og myndbyggingu, lýsingu
og margt fleira.
Námskeið fyrir alla
sem vilja komast í kynni við töfraheim
myndvinnslu með Photoshop. Gott framhald
fyrir þá sem hafa lokið námskeiðinu
Stafræn ljósmyndun.
Kennd eru grunnatriðin í Photoshop
5.5 t.d. hvernig lagfæra má myndir
s.s. liti og lýsingu, skerpu og kontrast,
skipta um einfalda bakgrunna og fl. Fjallað
verður almennt um úrvinnslu mynda
t.d. útprentun á bleksprautuprentara.
Samskipti og skipulag – Outlook
Staður: Neskaupstaður
- Verkmenntaskóli
Leiðbeinandi: NN
Verð: 2000
Lengd námskeiðs: 8 kennslustundir
– 2 skipti
Tími: mars 2007
Nemendur læri að skrifa,
senda, taka við, svara tilbaka og prenta
út póst. Að flokka póst
eftir innihaldi, sendanda og að búa
til tengiliði, póstgrúppur,
dagatal, sjálfvirkar undirskriftir, notkun
viðhengja og að afgreiða ruslpóst
á réttan hátt.
Námskeið fyrir þá
sem enga eða mjög litla undirstöðu
hafa í íslensku. Aðaláhersla
er lögð á talað mál
og að þjálfa nemendur í
daglegum samskiptum á íslensku.
Íslenska fyrir útlendinga II.
stig
Staður: Neskaupstaður
– Verkmenntaskóli Austurlands
Leiðbeinandi: NN
Verð: 12.400
Lengd námskeiðs.: 50 kennslustundir
Tími: námskeiðið hefst
í sept. 2006
Námskeiðið er
ætlað þeim sem hafa lokið
1. stigi eða hafa dvalið einhvern tíma
á landinu. Aðaláhersla er
á talað mál, s.s. vegna samskipta
á vinnumarkaði en einnig á
lesskilning. Fjallað um nauðsynleg málfræðiatriði
til að tala rétt mál
Enska I
Staður: Neskaupstaður
– í húsi Björgunarsveitarinnar
Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinandi: NN
Verð: 3000
Lengd námskeiðs.: 20 kennslustundir
Tími: hefst í apríl 2006
Á námskeiðinu
læra nemendur orðaforða sem nýtist
þeim við að bjarga sér
á erlendri grund. Að auki styrkja
þeir orðaforða sinn yfir ýmsa
hluti tengda daglegu lífi og farið
verður í nokkur auðveld málfræðiatriði.
Enska II
Staður: Neskaupstaður
– í húsi Björgunarsveitarinnar
Gerpis, Nesgötu 4
Leiðbeinandi: NN
Verð: 3000
Lengd námskeiðs.: 20 kennslustundir.
Tími: hefst í apríl 2007
Námskeiðið byggir
á námskeiðinu Enska I en þeir
sem kunna dálítið í
ensku geta vel komið beint inn á
þetta námskeið. Áfram
er haldið þjálfun í
talmáli og einfaldri málfræði
en við bætist ritun og lestur á
léttum textum.
Á námskeiðinu
læra þátttakendur hinar ýmsu
eldunaraðferðir á kjöti
s.s. að elda gómsætan mat úr
villibráð t.d. hreindýri,
gæs og önd. Unnið verður
með gæðahráefni úr
náttúru Íslands og mikil
áhersla lögð á að
gjörnýta hráefnið. Námskeiðsgögn
etin í lok námskeiðs.
Námskeiðið er
ætlað öllum þeim sem vilja
læra skyndihjálp og endurlífgun
og öðlast öryggi, færni
og þekkingu í að veita nærstöddum
aðstoð í bráðatilfellum.
Suðunámskeið
Staður: Neskaupstaður
- Verkmenntaskóli
Leiðbeinandi: NN
Verð: 0
Lengd námskeiðs: 12 kennslustundir
Tími: maí 2006
Líkamsbeiting
Stefnt er að námskeiði
og skipulegu átaki í þessum
málum í maí 2006