Jólakveðja
- Details
- Skrifað: 27. Desember 2010
Sendum starfsfólki okkar og fjölskyldum þeirra okkar bestu jólakveðjur sem og öðrum landsmönnum.
Gunnþór Ingvason
Framkvæmdastjóri
Sendum starfsfólki okkar og fjölskyldum þeirra okkar bestu jólakveðjur sem og öðrum landsmönnum.
Gunnþór Ingvason
Framkvæmdastjóri
Börkur NK-122 landaði í gær fyrsta loðnufarmi vertíðarinnar í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar, alls rúmum 400 tonnum. Loðnan er átulaus og um 16% feit og hentar vel hvort heldur til frystingar á A-Evrópu eða til mjöl- og lýsisframleiðslu. Eins og staðan er núna er eftirspurn eftir frosinni loðnu með minnsta móti og eingöngu hægt að nýta allra stærstu loðnuna til frystingar. Rúmlega þriðjungur aflans fór í frystingu en rest til mjöl- og lýsisvinnslu. Börkur NK hélt aftur til loðnuveiða seinni partinn í gær.
Beitir NK-123 kom með síldarfarm úr Breiðafirði til frystingar í gærkvöldi og er hún öll unnin á hefðbundna markaði. Reiknað er með að skipið fari einn síldartúr enn í Breiðafjörðinn og skipti síðan yfir á loðnu.