Stakksbraut 5 230 Keflavík Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Helguvík er staðsett rétt utan við Keflavík á suðvesturhorni landsins. Verksmiðjan er útbúin til framleiðslu á LT-mjöli. Meðalafkastageta verksmiðjunnar er 900 tonn á sólahring. Innsigling og hafnaraðstaða í Helguvík er mjög góð, mikið dýpi og stutt í alla þjónustu. Viðlegukantur er 150 metrar, dýpi er 10 metrar fyrir skip allt að 200 metrar. Þjónusta við skip er góð, vélaverkstæði, nótaverkstæði, kafari, verslanir og stutt að nálgast aðföng og þjónustu frá höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar um Reykjanesbæ eru á vefsvæði sveitarfélagsins www.reykjanesbaer.is
|
|