Fínasta ýsa í stuttum túr
Gullver NS landaði á Seyðisfirði í morgun að lokinni stuttri veiðiferð. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra þegar í land var komið og spurði fyrst um aflabrögð.
Ágæt vertíð en samt skrítin
Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir í Eyjum í gær. Bæði skip voru með fullfermi en þau hafa að undanförnu landað á tveggja til þriggja daga fresti. Heimasíðan ræddi við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey og spurði fyrst um aflann og hvar hefði verið veitt.
100 hol í Barentshafinu
Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun að afloknum túr í Barentshafið. Veiði skipsins var 928 tonn upp úr sjó en túrinn tók alls 40 daga, þar af voru veiðidagarnir 33 talsins. Verðmæti aflans er 413 milljónir króna. Heimasíðan heyrði hljóðið í Sigurði Herði Krisjánssyni skipstjóra þegar í land var komið.
Kynning á ársuppgjöri 2023
Gunnþór B. Ingvason forstjóri mun gera grein fyrir niðurstöðum ársuppgjöri 2023
Fundurinn verður haldinn með rafrænum hætti 07.03.2024 klukkan 16:00
SÍLDARVINNSLAN HF.
Síldarvinnslan hf. er nú eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemi sína á yfir hálfrar aldar reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er hið umsvifamesta á Íslandi á sviði veiða og vinnslu á uppsjávartegundum og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á landinu.
VEIÐAR
Síldarvinnslan er einn stærsti kvótahafi á Íslandi. Aflaheimildir samstæðunnar á kvótaárinu 2022/2023 eru 220 þúsund tonn eða 52 þúsund þorskígildistonn.
VINNSLA
Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi landsins á uppsjávarafurðum. Síldarvinnslan rekur í dag tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Fyrirtækið rekur hátækni fiskiðjuver í Neskaupstað og þar eru einnig stærstu frystigeymslur á landinu. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslur í Grindavík og á Seyðisfirði.
STARFSFÓLKIÐ
Síldarvinnslan er hátækni sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Fyrir slíkt félag er sífellt mikilvægara að ráða hæft fólk til starfa og tryggja strfsánægju þess. Félagið hefur því sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum