Vertíðarstemning á Seyðisfirði
- Details
- Dagsetning: 25. Janúar 2011
Fyrsta loðnan á vertíðinni barst til Seyðisfjarðar 15. janúar þegar Börkur NK landaði þar fullfermi. Síðan þá hefur hver báturinn af öðrum komið inn með fullfermi til löndunar.
Vinnsla í verksmiðjunni gengur mjög vel og er hráefnið sérlega gott til mjöl- og lýsisvinnslu. Gleðisvipur á starfsmönnum sem og bæjarbúum segir allt um hvað þetta er kærkomið og hvað þetta er mikilvægt fyrir okkar litla samfélag.