Bjarni Ólafsson er virkilega flottur

Í janúarmánuði árið 2003 undirrituðu stjórnir Síldarvinnslunar og SR – mjöls samrunaáætlun fyrir fyrirtækin. Með samrunanum eignaðist Síldarvinnslan 38% hlut í útgerðarfélaginu Runólfi Hallfreðssyni ehf. á Akranesi en Runólfur Hallfreðsson gerði út uppsjávarveiðiskipið Bjarna Ólafsson AK.

Góður afli og björgunaræfing

Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði að lokinni veiðiferð í morgun. Aflinn var 111 tonn, mest þorskur og ýsa. Að sögn Hjálmars Ólafs Bjarnasonar skipstjóra var víða veitt.

Nú þarf að sækja aflann austar

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gær. Vestmannaey hélt til veiða strax að löndun lokinni en áhöfn Bergs mun sækja Slysavarnaskóla sjómanna og mun skipið ekki láta úr höfn fyrr en á fimmtudagsmorgun.

Kynning á ársuppgjöri 2023

Gunnþór B. Ingvason forstjóri mun gera grein fyrir niðurstöðum ársuppgjöri 2023

Fundurinn verður haldinn með rafrænum hætti 07.03.2024 klukkan 16:00

SÍLDARVINNSLAN HF.

Síldarvinnslan hf. er nú eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemi sína á yfir hálfrar aldar reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er hið umsvifamesta á Íslandi á sviði veiða og vinnslu á uppsjávartegundum og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á landinu.

VEIÐAR

Síldarvinnslan er einn stærsti kvótahafi á Íslandi. Aflaheimildir samstæðunnar á kvótaárinu 2022/2023 eru 220 þúsund tonn eða 52 þúsund þorskígildistonn.

VINNSLA

Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi landsins á uppsjávarafurðum. Síldarvinnslan rekur í dag tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Fyrirtækið rekur hátækni fiskiðjuver í Neskaupstað og þar eru einnig stærstu frystigeymslur á landinu. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslur í Grindavík og á Seyðisfirði.

STARFSFÓLKIÐ

Síldarvinnslan er hátækni sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Fyrir slíkt félag er sífellt mikilvægara að ráða hæft fólk til starfa og tryggja strfsánægju þess. Félagið hefur því sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum