Gullver landar í Vestmannaeyjum

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði í Vestmannaeyjum á síðasta degi vetrar. Aflinn var 85 tonn, meirihlutinn ýsa en einnig karfi. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði fyrst hvort ekki hefði gengið vel að fiska.

Lengi til sjós, en lífið er meira en sjómennska

Í nýútkominni samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar eru stutt viðtöl við nokkra starfsmenn fyrirtækisins og dótturfélaga. Nokkur þeirra verða birt hér á heimasíðunni og hér er viðtal við Ríkharð Zoёga Stefánsson kokk á Bergi VE.

Aðgæsluveiði

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði fullfermi í Eyjum í gær. Afli Bergs var mest þorskur og ýsa en afli Vestmannaeyjar var blandaðri; þorskur, ýsa, ufsi og langa. Það tók innan við sólarhring hjá skipunum að fá í sig. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og létu þeir vel af sér.

Kynning á ársuppgjöri 2023

Gunnþór B. Ingvason forstjóri mun gera grein fyrir niðurstöðum ársuppgjöri 2023

Fundurinn verður haldinn með rafrænum hætti 07.03.2024 klukkan 16:00

SÍLDARVINNSLAN HF.

Síldarvinnslan hf. er nú eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemi sína á yfir hálfrar aldar reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Fyrirtækið er hið umsvifamesta á Íslandi á sviði veiða og vinnslu á uppsjávartegundum og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á landinu.

VEIÐAR

Síldarvinnslan er einn stærsti kvótahafi á Íslandi. Aflaheimildir samstæðunnar á kvótaárinu 2022/2023 eru 220 þúsund tonn eða 52 þúsund þorskígildistonn.

VINNSLA

Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi landsins á uppsjávarafurðum. Síldarvinnslan rekur í dag tvær fiskimjölsverksmiðjur, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Fyrirtækið rekur hátækni fiskiðjuver í Neskaupstað og þar eru einnig stærstu frystigeymslur á landinu. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslur í Grindavík og á Seyðisfirði.

STARFSFÓLKIÐ

Síldarvinnslan er hátækni sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Fyrir slíkt félag er sífellt mikilvægara að ráða hæft fólk til starfa og tryggja strfsánægju þess. Félagið hefur því sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum